Myndaseglar

4.900 kr
Virðisaukaskattur innifalinn

Myndaseglar

Mjúkir og sveigjanlegir seglar með teikningar af ýmsum dýrum og hlutum með orðum.

Ekkert orð inniheldur hvern staf oftar en einu sinni og því hægt að æfa sig að stafa orðin með einu setti af stafaseglum.

Pakkinn inniheldur 18 stk af seglum.
Seglarnir eru 5×8 cm að stærð.

Teikningar eru eftir Viktoriu K.

Íslensk hönnun og framleiðsla. 

Memore.is er íslensk netverslun sem er rekin af ungum foreldrum í Reykjavík. Þau hanna og framleiða allar vörur sjálf, m.a. stafasegla með íslenska stafrófinu. Þau byrjuðu að hanna seglana þegar dóttir þeirra var 2ja ára og sáu strax hvað áhuginn hennar og þekking á stöfunum jókst mikið umfram jafnaldra eftir að hún byrjaði að leika sér með þá. Þau fóru svo út í það að framleiða og selja þá eftir mikinn áhuga frá fjölskyldu og vinum, enda vantaði á markað segla með íslensku stöfunum.